dk
dk Viðskiptalausnir
dk býður upp á pakkalausnir í áskrift. Bókhalds- og sölukerfi ásamt kerfishýsingu. Þrjár mismunandi leiðir eru í boði, dk Kjarni, dk Vöxtur og dk Tindur. Einnig er hægt að bæta við öðrum kerfiseiningum sem dk hefur upp á að bjóða við alla pakkana. Þannig er hægt að bæta við kerfiseiningum og aðgöngum eftir því sem fyrirtækið stækkar.
Þjónustusamningur fylgir nú öllum nýjum pökkum í dk hugbúnaði.
Skýjalausnir dk gera bókurum kleift að tengjast rafrænt í bókhaldsgögn viðkomandi fyrirtækja.
Það eru yfir 33.000 fyrirtæki í skýinu hjá dk hugbúnaði.

dk Viðskiptalausnir
Þrír pakkar í áskrift. Skýr leið að réttri lausn.
Veldu pakka út frá umfangi rekstrar, sjálfvirkni og þeim ferlum sem þú vilt tengja saman.

dk Kjarni
fjárhagsgrunnur fyrir
smærri fyrirtæki og einyrkja
Grunneiningar
kr. 19.250
dk Vöxtur
hentar fyrirtækjum í
auknum vexti
Allt í dk Kjarna +
* Vara sem færir viðskiptavin yfir í dk Vöxt
Mest valið
kr. 29.500
dk Tindur
heildstætt fjárhagskerfi fyrir
meðalstór og stærri fyrirtæki
Allt í dk Vexti +
* Vara sem færir viðskiptavin yfir í dk Tind
kr. 39.000
Öll verð eru án vsk.
Ekki viss hvaða pakki hentar best?
Bókaðu ráðgjöf og fáðu leiðsögn við val á lausn
Heildarlausn í hýsingarþjónustu
Öryggi gagna
Öryggi viðskiptavinarins er tryggt þannig að allur vélbúnaður dk sem og kerfissalur uppfyllir ströngustu kröfur og skilyrði. Kröfur um gagnatengingar, varaaflsstöðvar, aðgangsstýringar, vírusvarnir, bruna- og vatnslekavarnir eru uppfylltar. Auk þess að vera undir stöðugu eftirliti fagmanna allan sólarhringinn.
dk sér um alla afritun gagna og annast uppfærslu hugbúnaðar sem tryggir aukið rekstraröryggi. Því má segja að með notkun skýjalausna dk verði kostnaður vegna reksturs tölvubúnaðar fyrirsjáanlegur.


Vefþjónusta
Hýsingarþjónusta og lausnir
Margvíslegar lausnir eru í boði til að tengja dk gögn við ytri kerfi.
Með vefþjónustutengingu við dk viðskiptahugbúnað er hægt að sækja, uppfæra og stofna sölureikninga, sölupantanir, birgðastöðu, fjárhagsfærslur ásamt fleiru. Samkeyra þannig gögn við t.d. vefverslun eða bókunarkerfi.
Birgða- og sölukerfi dk er hægt að tengja við vefverslanir fyrirtækja með vefþjónustu. Þannig næst tímasparnaður með aukinni sjálfvirkni vefverslunar.
Heildarlausn í hýsingarþjónustu
Kerfisleiguaðgangur
Hjá dk er hægt að fá sérsniðnar hýsingarlausnir fyrir allar stærðir fyrirtækja. Þannig er hægt að búa til hýsingarumhverfi sem hagkvæmast er hverju sinni.
Kerfisleiguaðgangur I er góð byrjun í skýinu hjá dk. Aðgangurinn inniheldur leyfi til að tengjast dk skýinu og þeirri þjónustu sem því fylgir


Vefþjónusta
Endurskoðendur og bókhaldsþjónusta
Einfalt er að opna aðgang fyrir endurskoðanda eða bókhaldsþjónustu sé þess óskað.
dk er með sérsniðar hugbúnaðarlausnir fyrir endurskoðendur og bóhaldsstofur. Fjárhagsbókhaldskerfi og framtalskerfi fyrir fagaðila.
Sjá nánar um dk fyrir endurskoðendur og bókhaldsstofur
Office 365
Ein þeirra skýjalausna sem boðið er upp á er Office 365, sem er ein af vinsælustu skýjalausnum í heiminum í dag.
Office 365 gerir notendum kleift að vinna hvar og hvenær sem er, einfaldar samvinnu og hefur sannað sig í aukinni framleiðni hjá starfsfólki sem notar Office 365.


Lausnatorg
Lausnatorg
Á Lausnatorgi dk má sjá dæmi um aðila sem sérhæfa sig í uppsetningu og framsetningu á BI-Stjórnendaupplýsingakerfum ásamt fyrirtækjum sem sérhæfa sig í uppsetningu og tengingu vefverslana.
Hægt er að fá tilbúnar tengingar við hin ýmsu sérkerfi við dk hugbúnað. Stöðugt fjölgar þeim tengingum sem dk gerir við hin ýmsu kerfi sem veita margvíslega þjónustu.
